Leikskólinn Flúðir

v/ Þingvallastræti

 Sími: 462-6602

veffang: fludir@akureyri.is

 

 

 

Starfsfólk
Foreldrahandbók
Dagatal mánaðarins
Skóladagatal 2011-2012
Umhverfissíða
Bernskulæsi
SMT-Skólafærni
Matseðillinn
Myndir
Sönglögin okkar
Foreldrafélagið
Ýmis eyðublöð
Tenglar
English

 

 

 

Sumarlokun Flúða 2012

9. júlí - 3.ágúst

 

Sumarlokun Flúða 2013

24. júní - 19. júlí

 

Sumarlokun Flúða 2014

7. júlí - 1.ágúst

 

 

Lokanir veturinn 2012

 

20. apríl lokað vegna námskeiðsdags starfsfólks

 

4. maí lokað 12.15 v/starfsmannafundar

 

 

 

Í dag, föstudaginn 11. maí, útskrifaðist leikskólinn sem sjálfstæður SMT skóli og fengum við afhentan fáni í tilefni dagsins.

Útskriftin var klukkan 10.00 og voru foreldrar velkomnir. Á eftir var boðið upp á léttar veitingar en hér má sjá myndir frá deginum.

 

 

Í dag, 7. maí, var sett upp listasýning með verkum eftir börnin, hér á Flúðum, niður í Íslandsbanka í miðbænum. Þar gefst öllum tækifæri til að koma og skoða verk eftir börnin á næstunni en sýningin er sett upp í tilefni af 150. ára afmæli Akureyrarbæjar. Hvetjum við alla til að gera sér ferð þangað að skoða verkin. Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru af sýningunni í dag.

 

 

Leikskólinn lokar næst föstudaginn 4. maí kl. 12:15, vegna starfsmannafundar.

 

Mánudaginn 30. apríl fóru nokkur börn af Huldulandi og Putalandi niður í Rósenborg að vinna að gerð Mósaíkslistaverk með 150. ára afmælismerki Akureyrarbæjar. Hér má sjá myndir úr þeirri ferð.

 

 

31. maí verða haldnir Ólympíuleikar hér á Flúðum í tengslum við Comeniusarverkefnið okkar.  Börnin munu þar keppa í ýmsum leikjum og þrautum en næsta Comeniusarheimsókn verður haldin í Englandi þar sem hinir alþjóðlegu Ólympíuleikar verða haldnir. 

 

Nú eru 28 dagar í Ólympíuleika Flúða:-)

 

 

Í dag, 29. mars, var afmæliskaka mánaðarins skreytt. Mættu þrjú afmælisbörn til að skreyta kökuna en hér má sjá nokkrar myndir.

 

 

Það voru glaðlegir nemendur í leik- og grunnskólum Akureyrar sem mættu á síðari söngdaginn í Skátagilinu í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar. Myndir af Flúðabörnum á söngdegi má sjá hér.

 

 

Á morgun miðvikudag 21. mars er foreldrum boðið í síðasta danstíma barnanna.

Nánari tímasetningar má finna á deildum.

 

 

Leikskólinn lokar næst 20. apríl vegna námskeiðsdags.

 

 

 Í dag, 23. febrúar, var afmæliskaka mánaðarins skreytt. Aðeins fjögur börn eiga afmæli í febrúarmánuði, Alda Rós á Huldulandi og Hákon Rúnar, Stefani og Steingrímur Heiðar á Putalandi. Myndir má sjá hér.

 

 

Í gær, 22. febrúar, var haldið upp á öskudaginn með pompi og prakt. Allur leikskólinn fór í leiðangur til að syngja í búðum í nágreninu en eftir hádegi var kötturinn sleginn úr tunnu inn á sal. Í tunnunni reyndist hellingur af poppi og svo var öskudagsball á eftir. Myndir má sjá hér.

 

 

Í dag, þann 17. febrúar var umhverfisnefndarfundur á Flúðum, hér má sjá fundargerð og mynd af Umhverfisnefnd skólans sem í eru elstu börnin, starfsfólk og fulltrúi foreldra. Umhverfisfundir eru einn liður í að vera Grænfánaskóli með virkan umhverfissáttmála.

 

 

Í dag, 10. febrúar, var söngsalur í umsjón Undralands. Sungin voru ýmis lög, mörg hver tengd öskudeginum, þar sem stutt er í þann skemmtilega dag. Myndir má sjá hér.

 

 

Í dag var fyrsta afmæliskaka ársins skreytt inn á sal. Afmælisbörn janúarmánaðar komu saman inn á sal og skreyttu kökurnar en myndir má sjá hér.

 

 

Í dag, 20. janúar, í tilefni af komu þorrans var haldinn Þorrasöngsalur í dag inn á sal. Börnin höfðu útbúið sér flottar kórónur í tilefni dagsins og voru sungin ýmis vetrar- og þorratengd lög. Myndir má sjá hér.

 

 

Sumarlokun Flúða 2012

 9.júlí - 3.ágúst

(opnum aftur 7. ágúst)

 

 

Nýr starfsmaður hefur hafið störf hjá okkur en það er hún Eva Bryndís Bernharðsdóttir og verður hún í afleysingum.  Einnig er byrjuð hjá hún Valdís Jónsdóttir en hún er í vinnustaðanámi frá VMA.  Valdís vinnur á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl:8-12 og verður til að byrja með inni á Putalandi.

 

 

Til foreldra barna í leikskólum Akureyrarbæjar.

 

Á hverju ári berast skóladeild Akureyrarbæjar umsóknir þar sem foreldrar óska eftir að flytja börn sín milli leikskóla innan bæjarins. Að því tilefni vill skóladeild benda á eftirfarandi:
Aðalinnritun í leikskólana fer fram í apríl / maí hvert ár. Því er mikilvægt að allar beiðnir um flutning hafi borist skóladeild Akureyrar fyrir 30. mars ár hvert. Ef umsóknir berast eftir þann tíma er ekki hægt að tryggja að flutningur geti átt sér stað fyrir væntanlegt skólaár.
 

 

Í dag föstudaginn 13. janúar var söngsalur þar sem sungin voru ýmis vetrartengd lög.

Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru í salnum.

 


Skólanefnd hefur samþykkt að sumarlokun leikskóla 2012 verði í tveimur tímabilum. Fyrra tímabilið verður frá 25. júní til 20. júlí og seinna tímabilið verður frá 9. júlí til 3. ágúst. Skólanefnd samþykkir að þetta fyrirkomulag verði sett upp til þriggja ára þar sem leikskólum er raðað niður á tímabilin. Þessi niðurstaða skólanefndar tekur mið af umsögnum sem bárust frá starfsmönnum leikskóla og foreldraráðum auk þess sem horft var til foreldrakönnunar frá vori 2011.

 

 

 

 

Nú í vetur er að fara af stað þróunarverkefni sem heitir leikum og lærum saman.  Verkefnið hefur það að markmiði að efla samstarf á milli Lundarskóla, Flúða, Pálmholts og Lundarsels til að auðvelda elstu börnum leikskólans að hefja grunnskólagöngu.  Þróunarverkefnið hefur hlotið styrk úr sprotasjóði sem er þróunarsjóður leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hulduland
Undraland
Putaland

 

 

Samstarf leik- og grunnskóla

Lundarskóli, Lundarsel, Flúðir og Pálmholt

 

Leikskólabæklingur

 

Vinnureglur v/óveðurs

 

 

 

 

Við tökum þátt í Comeniusar-

verkefni á vegum ESB

 

 

Flúðir er grænfánaskóli

 

 

Við notum tákn með tali

 

 

 

 

Leikskólastjóri:

Sigríður Ósk Jónasdóttir

Aðstoðarleikskólastjóri:

 Soffía Katrín Sigurðardóttir

 

 

Síðan var síðast uppfærð þann

11.05.2012